g ótr Models legt að Tiny lið á útivelli skuli svoleiðis flengja heimaliði og gjersamlega kenna því knattspyrnu. Sporting menn voru alveg Cunt á þekju. Réðu ekkert við hæð Luca Toni og það gekk bara ekkert upp hjá þeim. Það er augljós q
að eina wýska liðið Tiny hér í ár er með goldenw ticket to Quarter Finals.
Manchester United, Barcelona, Arsenal, Porto, Chelsea, Panathinakos, Bayern Munich og Liverpool væri ágætis lineup fyrir 8-liða úrslitin. En þetta er bara hálfnað.
Gerðu athugasemd
Bíómyndaflóð janúars
Janúar er frábær mánuður. Jack Bauer fór á fullt vestanhafs í gær og allar Óskarsverðlaunamyndirnar fara að poppa hægri vinstri. Tók mig til og horfði á eina af myndunum sem ég hafði heyrt að fengið hefði góða dóma sem heitir Slumdog Millionaire. Verð bara að segja að þetta hafi verið meistarastykki. Heillaði mig á alla vegu og mæli sterklega með henni en hún fékk einmitt í gærnótt Golden Globe verðlaunin sem besta mynd í flokki drama mynda. |
Dreams
Dreymdi þann skemmtilega draum um daginn að ég, Viktor og Þröstur vorum á leiðinni í Kastljósið að tala um tölvunarfræðinga og status þeirra í lífinu. Löbbum inn í Efstaleitið og okkur er bent hvert við eigum að fara. Löbbum inn einhvern gang og inn í herbergi sem er eins og búningsherbergi eðlilegs íþróttahúss með svona snögum til að hengja upp flíkar. Við svona skiljum ekki alveg en bíðum þarna (í fötunum) og höldum svo eitthvað áfram. Á þeim tíma týni ég þeim tvem og er farinn að vera stressaður og byrja að hlaupa um Efstaleitið, spyrjandi hvar stúdíóið er fyrir Kastljósið. Og mér er bent eitthvað og leita og ekki finn ég strákana.. hlaupandi útum allt. Enda á því að fara út fyrir húsið. Og kominn hálfan hring þegar ég sé þá báða og huge video-crew af fólki. Kem kófsveittur og er uppá svona smá hæð og þarf að hoppa niður nokkra metra til að komast til þeirra (líka hægt að labba í kring). Viktor og Þröstur hrópa ekki hoppa. Ég bara.. oh ok og tek hringinn. Svo labba ég í viðtalið og frekar gamall kall að taka viðtalið við okkur. Ég eins og áður segir kófsveittur og hann byrjar þetta á því að segja eitthvað um að hafa googlað mig og eitthvað blablabla.... þá fór ég að hugsa í miðju viðtali; djöfull er ég að fara að meika hérna public humiliation því ég veit ekkert hvað hann er að segja. Lýt á Þröst og Viktor og þá eru þeir orðnir 3-5 árum yngri. Lýt síðan í kameruna og vakna. Fáránlegur draumur. Langaði bara að skrifa hann niður. Dreymdi svo líka að ég hefði kysst 3 stelpur og fyrir framan þær allar. Svo verið sleginn í framan... af þeim öllum. Fengið þá idealogy frá Inga Má Kjartanssyni og Þránni nokkrum. En það er önnur saga.
Ætla nú að bæta því við að ég keypti mína fyrstu íslensku eða tvær reyndar geislaplötur síðan ég man eftir mér fyrr í dag. Má telja að SMÁÍS hafi með smá móti tekist að koma í veg fyrir íslenskt piracy gegnum síðustu ár. En að sjálfsögðu stoppar það aldrei. Ólöglegt efni/tónlist og annað mun aldrei (að ég tel) stöðvast í umferð. Ef við myndum segja að einhvað túrbó fyrirtæki yrði stofnað og geta komið í veg fyrir öll helstu tól dagsins í dag til þess að miðla þessu efni yrði fólk ekki lengi að finna nýjar leiðir. Þannig endilega haldið áfram að downloada... þið verðið ekki handtekin =) En þrátt fyrir allt piracy-ið segja flestir stórhópar þess "if you like it - buy it". |